Stýrikerfisútgáfur fyrir Símaróm.

Stuðningur er veittur fyrir Símaróm á ákveðnum útgáfum iOS og Android hverju sinni. Listinn er uppfærður um leið og stuðningur breytist.

iOS (iPhone og iPad)

ÚtgáfaStaðaAthugasemd
iOS 26.4 eða nýrri Stuðningur Á iOS 26.4 þarf að velja rödd úr Símarómi fyrir bæði íslensku og ensku. Frá iOS 26.5 velur síminn rétta rödd sjálfkrafa, sé kveikt á „Detect Languages“ í talstillingum.
iOS 26.0 til 26.3 Enginn stuðningur Uppfærðu í iOS 26.4 eða nýrri.
iOS 18 Stuðningur Velja þarf rödd úr Símarómi fyrir bæði íslensku og ensku.
iOS 17.4 til 17.7 Virkar, án stuðnings Á iPad fær iPadOS 17.7 enn öryggisuppfærslur frá Apple.
iOS 17.3 eða eldri Enginn stuðningur

Android

ÚtgáfaStaðaAthugasemd
Android 16 Stuðningur
Android 15 Stuðningur
Android 14 Stuðningur
Android 13 eða eldri Enginn stuðningur

Hvaða tæki?

iPhone og iPad

Staða tækis ræðst af hæstu útgáfu sem það kemst í. Allar iPhone-gerðir sem keyra iOS 17 geta uppfært í iOS 18.

TækiHæsta útgáfaStaða
iPhone 11 og nýrri, iPhone SE frá 2020 iOS 26 Stuðningur
iPhone XS, iPhone XS Max, iPhone XR iOS 18 Stuðningur
iPhone X, iPhone 8 og eldri iOS 16 eða eldri Enginn stuðningur
iPad 8. kynslóð og nýrri, iPad mini frá 5. kynslóð, iPad Air frá 3. kynslóð, allir iPad Pro frá 2018 iPadOS 26 Stuðningur
iPad 7. kynslóð iPadOS 18 Stuðningur
iPad 6. kynslóð, iPad Pro 10,5 tommu, iPad Pro 12,9 tommu frá 2017 iPadOS 17.7 Virkar, án stuðnings
iPad 5. kynslóð, iPad Pro frá 2015 og 2016 og eldri iPadOS 16 eða eldri Enginn stuðningur

Android

Úrval Android-tækja er svo fjölbreytt að við gefum hvorki lista né meðmæli um einstök tæki. Þar gildir eingöngu útgáfa Android á tækinu.

MDM-kerfi og Managed App Configuration

Sé Símarómur leyfisstilltur í gegnum MDM-kerfi með Managed App Configuration gilda einnig stuðningsreglur MDM-kerfisins sjálfs. Kerfi á borð við Microsoft Intune og Jamf styðja aðeins nýlegar útgáfur af iOS og listarnir breytast reglulega. Athugaðu því einnig samhæfnilista MDM-kerfisins þíns.

Styðji MDM-kerfið tækið ekki er samt hægt að virkja Símaróm beint á tækinu, annaðhvort með því að skanna QR-kóða eða með því að kaupa áskrift í App Store.

Hvað þýða stöðurnar?

  • Stuðningur: Við prófum Símaróm á þessum útgáfum og veitum stuðning.
  • Virkar, án stuðnings: Samkvæmt okkar bestu vitund virkar Símarómur á þessum útgáfum. Við getum hins vegar ekki lengur prófað á þeim og getum því ekki veitt stuðning.
  • Enginn stuðningur: Símarómur virkar ekki eða hefur ekki verið prófaður á þessum útgáfum. Á iOS 16 gæti appið virkað, en um það höfum við enga vitneskju. Á iOS 15 og eldri virkar það alls ekki, því stuðningur við talgervla frá þriðja aðila kom fyrst í iOS 16.

Uppfært 5. ágúst 2026