Íslenska alls staðar
Símarómur tengist aðgengisforritum tækja, sem stýra upplestri á öllu efni á símanum. Read&Speak, VoiceOver, TalkBack og önnur aðgengisforrit leyfa upplestur á vefsíðum, skjölum, skilaboðum, tölvupósti og öðrum textum — með Símarómi virkar íslenskan alls staðar.
Tjáskiptaforrit
Símarómur tengist tjáskiptaforritum eins og Speech Assistant og TDSnap. Veldu þá rödd sem þér líkar best til þess að tjá þig með á íslensku.